26. september 2005

Grilluðum lax í kvöld eins og oft áður. Næstum besti matur í heimi.

1 kg lax lagður í lög sem samanstendur af
1dl hunang
2msk soyasósa
1dl sesamolía
1cm engifer
½ dl sítrónusafi
2 hvítlauksrif
Allt sett í matvinnsluvél (nýja kitchen aid blenderinn sem er bara æði)

Bjó svo til mango chutney og setti í það:
1 mangó
½ lítill laukur
1 hvítlauksrif
Smá engiferbiti
Salt
Pipar
Sinnep
1 þurrkaður chilli pipar (mínus kornin)
Smá hvítvínsedik
1 epli
Smá kanill

Salatið var svo samsett af
Spínat
Rukóla blanda
2 tómatar
1 paprika
Alfa alfa spírur
Nokkrar radísur
Furuhnetur (þurrristuð á pönnu)
Sólblómafræ (þurrristuð á pönnu)
Balsamiko + olífuolía dassað yfir

Keypti svo forsoðnar litlar kartöflur sem búið var að krydda með kryddjurtum, þær hitaðar á pönnu

Þetta bragðaðist alveg ljómandi vel
Endilega prófið. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi uppskriftir, setjið þá bara komment og ég skal reyna að skýra út.

Kveðja,
Alma :)

12. september 2005

Fengum okkur heilsuhammara (ef það er til)
Keyptum "low fat" nautahakk. Við það er blandað þykkri brauðsneið, börk af heilli sítrónu, ýmsar kryddjurtir (það sem til er), salt og pipar.
Mótaðir borgarar og svo grilluðum við þetta á mínútugrillinu.
Salsa með sem í var eitt avokadó í bitum, 3 tómatar í bitum (fræin og það fjarlægð), sítrónusafi og kóríander (hálft búnt).
Sýrður rjómi með og svo auðvitað hamborgarabrauð.
Svaka fínn matur.

11. september 2005


Gummi med samlokuna sina og Erdinger


Thessa mynd tokum vid i dag thar sem eg og G fengum okkur samlokur en bornin krokette - mjog typiskt hollenskt - djupsteikt kjotfars - alveg vibbi finnst mer en krakkarnir fila thetta vel eins og hollenskir krakkar


Og svo med kaffinu fengum vid thessa girnilegu konfektmola


Og svo eftirretturinn - ostakaka - alveg uppahaldid mitt


For eftirrettur - is med hvitu sukkuladi utan um


Sko vid fengum meira ad segja lamb sem var mjog gott - skoskt


Forretturinn i gearkvoldi a veitngastadnum Linnen. Lettgrilladur tunfiskur og djupsteikt ostra - framreitt kalt..nammm


For forrettur

8. september 2005


Inverskt dahl med naanbraudi og mangososu

Indverkt Dahl með naanbrauði og mangósósu

Þessi uppskrift er eiginlega mix af 2 dahl uppskriftum. Eiginlega bara notað það sem var í skápnum.

Kórander fræ, cumin fræ steikt á pönnu. Laukur, hvítlaukur, hálfur chili pipar, 1tsk garam masala og engifer sett á pönnuna þegar fræin eru farin að poppast. Steikt í nokkrar mín og þá er 500g af rauðum nýrnabaunum sett úti. Einnig setti ég smá slurk af kjúklingabaunum þar sem mér finnst svo góðar.
Skellti svo 250ml af vatni og 1 dós af kókosmjólk útí.
Leyft að sjóða í uþb korter. Svo stráði ég þurrkuðum koriander úti þar sem ekki fékkst ferskur út í búð í dag. Ætti eiginlega bara að rækta hann sjálf.
Bakaði svo naanbrauð með.
Sósan var heilt mangó maukað í flotta mixernum okkar. Það verður eins og sett hafi verið rjómi úti. Alveg silkimjúkt og gott.
Rétturinn var mjög bragðgóður en hefði alveg mátt vera sterkari.
Börnunum fannst þetta alveg ljómandi gott og þá sérstaklega Marteini sem fékk sér 3svar á diskinn.

7. september 2005


Og svo eftir nokkrar sek - tilbuid


Hadegisverdurinn fyrir mix. Kwark (skyr), aprikosa, appelsina, nokkur frosin jardaber, banani og melona


Og svo i aksj�n


Nyju graejurnar


Maturinn i gaerkvoldi. Bara svona thad sem fannst i skapunum. Tortillakaka me� maukudu avocado, nyrnabaunum, papriku, fetaosti, tomotum og rifnum osti. Voda gott.

6. september 2005

Kvöldmaturinn í gær var kræklingur í hvítvíni.

Fyrst er skelin sett á kaf í vatn og þær sem fljóta upp eru ónýtar svo þeim er hend. Síðan er skelin þvegin með bursta.
Steiktum einn lauk í olíu og skelltum svo 2 kílóum af kræklingaskeljum úti pottinn. Síðan var einni hvítvín hellt yfir. Látið sjóða þar til allar skeljarnar hafa opnast. Bökuðum upp hluta af soðinu og settum kryddjurtir úti (steinselju, graslauk og basil).
Með þessu var serverað afskaplega gott hvítvín.
Ferlega ljúft að gæða sér á. Stóri kosturinn við svona fæði er hvað maður er lengi að borða :)

3. september 2005


Isabella �tti afmaeli 29.agust og fekk leirdot i afmaelisgj�f fra bornunum minum. Tharna er Doro buin ad bua til salat, hamborgara og samloku ur leir...nammnamm


Byrja� a� undibua pizzurnar

Grill kvöldsins. Kata vinkona er í heimsókn og við sátum úti og höfðum það mjög ljúft.

Grilluðum "drumsticks" fyrir krakkana.
Eg setti kryddlög á þá og lét liggja í klst í kæli. Í honum var: olífuolía, hvítvínsedik, 2 hvítlauksrif, jarðaberjasulta og sojasósa.

Við fullorðna fólkið fengum:

4 úrbeinaðar og skinnlausar kjúklingabringur lagðar í kryddlög sem samanstendur af: piparkornum (eftir smekk, Gummi setti 2 tsk en hann er algjör piparkarl:) , 1 þurrkaður chilipipar, kóríander seeds (1-2 tsk), 1 tsk gróft sjávarsalt og svo ólífuolía, slatti (þarf að hylja kjúklinginn, best að setja í djúpa skál, börkur af einu lime rifið ofan í olíuna + safinn úr læminu.
Bringurnar skornar í strimla og látnar lggja í leginum í amk klst og svo þræddar upp á teina og grillaðar. Passa bara að grilla ekki of lengi, bara svo að bringunar verði grillaðar í gegn en samt ekki þurrar.

Salat
Rucola, 1/2 mangó, 1/2 avocadó, smá gul melóna (sem við áttum afgang af síðan í hádeginu), limone balsamico (lögurinn sem við notuðum ofan á).

Sósa
2 msk hvítt skyr (kwark, sem er mjög líkt ísl. skyri)
2 msk Kotasæla
1 msk sulta (ég notaði jarðaberjasultu)
slatti af þurrkuðu dilli
salt

-Grillað grænmeti
Grillaðar 2 heilar paprikur og 2 rauðlaukar og svo maískorn sem við borðuðum eiginlega í forrétt

Yndislegt alveg

Gummi mælir með áströlsu vínu t.d. blöndu af cabernet og shiras, Hardys bin343 2004.

2. september 2005


avaxtaskalarnar eftir markadsferd...girnilegt