Indverkt Dahl með naanbrauði og mangósósu
Þessi uppskrift er eiginlega mix af 2 dahl uppskriftum. Eiginlega bara notað það sem var í skápnum.
Kórander fræ, cumin fræ steikt á pönnu. Laukur, hvítlaukur, hálfur chili pipar, 1tsk garam masala og engifer sett á pönnuna þegar fræin eru farin að poppast. Steikt í nokkrar mín og þá er 500g af rauðum nýrnabaunum sett úti. Einnig setti ég smá slurk af kjúklingabaunum þar sem mér finnst svo góðar.
Skellti svo 250ml af vatni og 1 dós af kókosmjólk útí.
Leyft að sjóða í uþb korter. Svo stráði ég þurrkuðum koriander úti þar sem ekki fékkst ferskur út í búð í dag. Ætti eiginlega bara að rækta hann sjálf.
Bakaði svo naanbrauð með.
Sósan var heilt mangó maukað í flotta mixernum okkar. Það verður eins og sett hafi verið rjómi úti. Alveg silkimjúkt og gott.
Rétturinn var mjög bragðgóður en hefði alveg mátt vera sterkari.
Börnunum fannst þetta alveg ljómandi gott og þá sérstaklega Marteini sem fékk sér 3svar á diskinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home