8. október 2007

pizzusnúðar (frá Sollu)

fylling:
1 dós (200g) lífrænt tómatþykkni*
2 dl salsa pronta frá LaSelva
100 g spínat, saxað smátt í matvinnsluvél (má sleppa)
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk oregano
1 tsk basil
1 tsk timian
¼ tsk kanill
50 g furuhnetur
Hrærið öllu saman í skál og smyrjið á deigið
ef þið viljið nota ost er upplagt að strá rifnum osti (t.d. parmesan, sojaosti eða geita) yfir fyllinguna þegar þið hafði smurt henni á deigið
Deigið
250 g spelt, hægt að nota fínt og gróft til helminga
3 tsk vínsteinslyftiduft
½ tsk salt
1 tsk oregano
1-2 msk olía, t.d. kaldpressuð kókosolía eða ólífuolía
125-150 ml heitt vatn
setjið allt nema vatnið í hrærivél eða matvinnsluvél og blandið saman, bætið vatninu útí smá saman þar til deigið myndar kúlu, þá er það tilbúið. Stráið spelti á borðið og fletjið deigið út, reynið að hafa það ferhyrnt. Smyrjið fyllingunni á deigið, rúllið því upp svo það verði að þykkri “pulsu” og skerið í sneiðar sem þið setjið á bökunarpappír á ofnplötu. Bakið í um 15 mín við 200*C . Þessa snúða er upplagt að frysta.
________________________________________

Súkkulaði muffins m/súkkulaði og hnetukremi

Þessar eru rosalega góðar - eins og frönsk súkkulaðikaka þegar þær eru nýbakaðar.
Svo hef ég skellt þeim í frystinn og Marteinn fengið þær með sér í nesti þegar er útikennsla hjá honum. Það er svo gaman að gefa honum hollustu - hann elskar þetta og segir sko nei takk þegar honum er boðin t.d. hrísmjólk eða eitthvað þaðan af sætara.
Hann er algjör hollustukall :)


2 ½ dl möndlumjólk eða sojamjólk eða hrísgrjónamjólk eða mjólk
2 tsk sítrónusafi
1 ½ dl agavesýróp*
¾ dl kaldpressuð kókosolía*
1 tsk vanilluduft*
2 ½ dl spelt* t.d. fínt og gróft til helminga
¾ dl hreint kakóduft*
1 ½ tsk vínsteinslyftiduft
¼ tsk himalaya eða sjávarsalt
Hitið ofninn í 180*C. Setjið möndlumjólk (eða aðra mjólk) í matvinnsluvél ásamt sítrónusafa, agavesýrópi, kókosolíu og vanilludufti og hrærið þar til þetta verður létt og freyðandi. Blandið þurrefnunum saman í annari skál og hellið vökvablöndunni útí og hrærið saman. Setjið í ykkar uppáhalds muffins form eða bréf og bakið í um 18-20 mín eða þar til þetta er alveg gegnum bakað. Ef þið ætlið að hafa krem á þeim þá er best að láta þær kólan fyrst.
Súkkulaði og hnetukrem:
½ dl agavesýróp*
¾ dl kaldpressuð kókosolía*
1 dl hreint kakóduft
1 msk hnetusmjör* eða tahini*
Hrærið öllu saman í skál og setjið kremið oná kökurnar þegar þær hafa kólnað

Banana múffur

Þessar múffur hafa verið mjög vinsælar á mínu heimili (frá Sollu)


100 g heslihnetur* malaðar
200 g spelt* nota má fínt og gróft til helminga
2 msk. hreint kakóduft*
2 tsk. vínsteinslyftiduft*
1/2 tsk. vanilluduft*
sjávarsalt á hnífsoddi
2 bananar, vel þroskaðir, afhýddir og skornir í bita
2 egg
250 g döðlur*
1/2-1 tsk. sítrónusafi
Hitið ofninn í 180°C. Blandið þurrefnunum saman í skál. Setjið banana, egg, döðlur og sítrónusafa í matvinnsluvél og maukið þar til þetta verður aðeins freyðandi. Blandið bananablöndunni varlega saman við þurrefnin með sleif.
Setjið í múffuform (sniðugt er að strá dálitlu kókosmjöli á botninn) og bakið í u.þ.b. 15 mínútur. Þetta gera 12-14 múffur

Galdurinn í staðinn fyrir sykur (frá Sollu)

1 dl sykur = 1 ½ dl döðlumauk
1 dl sykur = 1 ½ dl ávaxtamauk (þið getið gert ykkar eigin blöndu)
1 dl sykur = ½ dl döðlumauk + ½ dl agavesýróp
1 dl sykur = ½ - ¾ dl agavesýróp

Döðlumauk
setjið 500g döðlur* í skál með vatni, látið vatnið rétt fljóta yfir, eftir 15 - 30 mín er vatninu hellt af (geymt) og döðlurnar settar í matvinnsluvél ásamt 1-1 ½ dl af bleytivatninu og maukað. Geymist í ísskáp í um 2 vikur, en 3-6 mánuði í frysti.

Ávaxtamauk
200 g döðlur*
150 g rúsínur*
150 g sveskjur



3 dl vatn
1 lífræn appelsína, skorin í fernt (má nota sítrónu í staðin)
½ tsk kanill
½ tsk vanilluduft*
¼ tsk kardimomma
salt af hnífsoddi
Allt sett í pott og soðið í um 20-30 mín, passið að hræra í annað slagið, veiðið appelsínurnar uppúr og setjið restina í matvinnsluvél og maukið. sumum finnst gott að þurrrista 1 dl af kókosmjöli* á pönnu og bæta útí maukið