15. maí 2007

Rækjur með fetaosti (Garidas me fetta)

250-400g rækjur, skelflettar
400g tómatar, vel þroskaðir
2 laukar
ólífuolía
100ml hvítvín (eða vatn og dálítill sítrónusafi)
1/2 knippi söxuð steinselja
pipar, salt
200g fetaostur

Látið rækjurnar þiðna. Skerið kross ofan í tómatana, setjið þá í skál og hellið sjóðandi vatni yfir. Látið tómatana standa í 20-30 sekúndur. Hellið svo vatninu af þeim, flysjið þá, skerið þá í tvennt og skafið fræin úr þeim með teskeið. Skerið þá síðan í litla teninga. hitið olíuna á pönnu. Saxið laukinn smátt og látið hann krauma í olíunni við meðalhita í nokkrar mínútur. Bætið þá tómötum, hvítvíni, mestallri steinseljunni, pipar og salti út í og látið sjóða nokkuð rösklega þar til mestallur vökvinn er gufaður upp. Setjið rækjurnar út í látið malla þar til þær hafa hitnað í gegn. Dreifið fetaostinum yfir og takið af hitanum. Hellið í skál eða á fat, straið steinselju yfir og berið fram með góðu brauði.

Eplakaka - hrá - ein sem klárast alltaf

1/2 bolli möndlur
1/2 bolli kókosmjöl
250g steinlausar döðlur
150g rúsínur
1 tsk kanill
1/4 tsk negull
1/4 tsk vanilluduft (eða dropar)
3-4 epli, rifin á grófu rifjárni (t.d. 2 rauð og 1-2 græn því þá verður kakan svo flott á litin, hýðið með og því er betra að hafa þau lífrænt ræktuð)

Setjið möndlur, kókosmjöl, döðlur, rúsínur, kanil og negul í matvinnsluvél og blandið vel saman. Kreistið safann vel úr rifnu eplunum og bætið þeim útí skálina og hnoðið eða kreistið vel saman. Pressið k0kuna niður í form sem er 23cm í þvermál. Ég nota silikonform, auðvelt að ná kökunni úr. Setjið kökuna í frysti í um 15 mínútur eða á meðan þið búið til kremið.

Krem:
1 bolli möndlur eða kasjúhnetur eða makadamíuhnetur
4 msk agave síróp (ég hef líka notað 50/50 agave og maple)
1/4-1/2 bolli vatn
1/2 tsk vanilluduft
Setjið allt í blandara og blandið þar til silkimjúkt. Smyrjið kreminu á kökuna og stráið kókosmjöli yfir